Forsætisráðherra kynnti sér starfsemi Seðlabankans

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Már Guðmundsson Seðlabankastjóri.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, heimsótti Seðlabanka Íslands í vikunni og ræddi við stjórnendur og annað starfsfólk. Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, tók á móti Katrínu og kynnti umfangsmikla starfsemi bankans. Þau ræddu meðal annars endurskoðun á ramma peningastefnu sem nú er í vinnslu, stöðu efnahagsmála og breytingar sem orðið hafa á starfsemi Seðlabankans á síðustu árum. Katrín var sérstaklega ánægð að sjá aukinn hlut kvenna og eru konur nú um helmingur starfsmanna og stjórnenda bankans.

Segja má að hið stóra sparibaukasafn bankans hafi þó verið hápunktur heimsóknarinnar einkum vegna þess að Katrín er mikil áhugakona um verndun sparibauka. Sparibaukasafn bankans samanstendur af sparibaukum frá bönkum og sparisjóðum á síðustu öld. Þó safnið sé stórt þá vantar enn einhverja útgefna sparibauka landsins í það. Katrín benti þá á gamansömum nótum að hún gæti aukið verðgildi safnsins með nokkrum vel völdum menningarperlum úr eigin safni og leist Seðlabankastjóra vel á þá hugmynd.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila