Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, fundaði með Degi B. Eggertssyni, borgarstjóra, í forsætisráðuneytinu í dag. Katrín og Dagur ræddu meðal annars um stöðu undirbúnings við Borgarlínuverkefnið en borgarstjóri kynnti hana fyrir forsætisráðherra, sem og næstu skref í samtali ríkis og borgar um samgönguframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu. Þá ræddu þau mikilvægi þess að góð samstaða tækist um framhaldið þannig að hefja megi formlegar viðræður ríkisins og Reykjavíkurborgar og annarra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um fjármögnun Borgarlínu og annarra framkvæmda á næstu árum.