Framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda samþykkt á Alþingi

thingid311Alþingi samþykkti í vikunni þingsályktunartillögu félags- og húsnæðismálaráðherra um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda til fjögurra ára. Um er að ræða fyrstu lögbundnu framkvæmdaáætlunina í þessum málaflokki sem er unnin í samræmi við lög um málefni innflytjenda frá árinu 2012. Fram kemur í tilkynningu frá Velferðarráðuneytinu er markmið áætlunarinnar sé að stuðla að samfélagi þar sem allir geta verið virkir þátttakendur óháð þjóðerni og uppruna.
Grunnurinn að framkvæmdaáætluninni var unnin af innflytjendaráði vorið 2014. Byggt er á fimm meginstoðum í áætluninni sem eru eftirfarandi; samfélag, fjölskylda, menntun, vinnumarkaður og flóttafólk. Framkvæmdaáætlunin er kaflaskipt í samræmi við framantaldar meginstoðir. Undir hverri þeirra er fjallað um aðgerðir og helstu markmið þeirra, hvernig framkvæmdinni skuli hagað og hverjir beri ábyrgð á að hrinda þeim í framkvæmd.
Sú stoð sem snýr að samfélaginu fjallar um verkefni sem draga fram tækifæri sem felist í ólíkum menningarlegum bak­grunni landsmanna og til þess fallin að nýta þannig þekkingu innflytjenda til að eflingar í íslensku samfélagi. Meðal aðgerða sem finna má í áætluninni er fræðsla til starfsmanna ríkis og sveitarfélaga, hvatningarverðlaun til þeirra aðila sem stuðla að faglegri, vandaðri og upplýstri umfjöllun um málefni innflytjenda og þátttöku þeirra í samfélaginu.
Í fjölskyldustoðinni er lögð áhersla á verkefni sem stuðla að aukninni upplýsingagjöf til innflytjenda fyrst eftir komu þeirra til landsins. Þá er gert ráð fyrir að leitað verði leiða til þess að varpa ljósi á aðstæður innflytjenda á húsnæðis­markaði og vinna að bættu húsnæðisöryggi. Í því sambandi verði einkum lögð áhersla á stuðning við þá hópa innflytjenda sem sagðir eru standa höllum fæti og skorti stuðningsnet hér á landi. Þá verði einnig unnið að því að auka þátttöku barna og ungmenna innflytjenda í skipulögðu íþrótta- og æskulýðisstarfi.
Í menntastoðinni er lögð áhersla á jafna stöðu og jöfn tækifæri til menntunar og að þekking og reynsla inn­flytjenda sé metin. Í áætluninni er lagt til að unnið verði markvissara gegn brottfalli innflytjenda úr framhaldsskólum með stuðningi á öllum skólastigum, meðal annars með aukinni áherslu á kennslu í móðurmáli þeirra barna sem hafa annað móðurmál en íslensku.
Í vinnumarkaðsstoðinni er lögð áhersla á að staða innflytjenda á vinnumarkaði verði styrkt og tryggt að þeir njóti sömu tækifæra og aðrir. Launajafnrétti á vinnumarkaði verði sett í forgang sem og það að tryggja innflytjendum aukin tækifæri til endurmenntunar og starfstengds náms.
Í fimmtu stoðinni sem fjallar um flóttafólk er lög áhersla á að flóttafólk fái fljótt tækifæri til virkrar þátttöku í sam­félaginu, hvort sem er á vinnumarkaði, varðandi menntun eða á öðrum sviðum. Jafnframt fái flóttafólk nauðsynlega aðstoð til að vinna úr þeim áföllum sem það er að kljást við.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila