Framkvæmdastórn Evrópuráðsþingsins hafnaði nýjum stjórnmálahópi vegna andstöðu Þórhildar og Rósu Bjarkar

Framkvæmdastjórn Evrópuráðsþingsins hafnaði á fundi sínum sem lauk í París í dag, að ný stjórnmálahópur væri viðurkenndur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur þingmanni Pírata og Rósu Björk Brynjólfsdóttur þingmanni Vinstri grænna. Í tilkynningunni segir að þær Þórhildur og Rósa hafi leitt andstöðuna við viðurkenningu stjórnmálahópsins en í tilkynningunni segja þær hópinn hafa samanstaðið af meðlimum öfga hægri flokka sem gefi sig út fyrir að vera á móti innflytjendum og hælisleitendum. Þá segir í tilkynningunni að þingmennirnir tveir séu afar ánægðir með niðurstöðuna „Þetta sýnir að það er hægt að sporna við haturs-orðræðu og kynþáttahatri í stjórnmálum ef vilji er fyrir hendi. Þetta er frábær niðurstaða á tímum þegar vegið er stöðugt að mannréttindum.“ segir Rósa Björk og Þórhildur Sunna bætir við; „við Rósa lögðum þrotlausa vinnu í það að standa vörð um gildi Evrópuráðsins í þessu máli og sú vinna hefur nú skilað þessum mikilvæga árangri í baráttunni við hatursorðræðu. Þetta eru þingmenn öfga-hægri flokka, eins og Alternativ für Deutschland og Lega Nord sem bera enga virðingu fyrir gildum Evrópuráðsins, við gátum ekki samþykkt viðurkenningu þeirra og nú er ljóst að framkvæmdastjórnin gerir það ekki heldur. Því ber að fagna.„ segir í tilkynningu Þórhildar og Rósu Bjarkar.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila