Framleiðsla á eldisfiski hérlendis hefur á undanförnum árum aukist verulega og hefur sú hraða þróun í fiskeldi hér á landi vakið talsverða athygli erlendis. Á síðustu tveimur árum hefur aukningin slegið öll fyrri met og á árinu 2017 fór ársframleiðslan í fyrsta sinn yfir 20.000 tonn. Mest er framleitt af laxi hérlendis eða um 11 þúsund tonn, þá kemur regnbogasilungurinn þar á eftir með um 4600 tonn og lestina rekur eldisbleikjan en á því ári voru framleidd 4500 tonn af bleikju. Til marks um hversu mikið framleiðslan hefur aukist má nefna að á árinu 2015 voru alls framleidd 8290 tonn af eldisfiski samanlagt. Þær lagabreytingar sem nú eru í bígerð vegna greinarinnar sem fer stöðugt vaxandi hafa sætt talsverðri andstöðu hagsmunaaðila, enda gera þær ráð fyrir að farið verði afar varlega af hálfu stjórnvalda að styðja við framþróun í fiskeldi, sér í lagi vegna meintrar hættu á erfðablöndun eldisstofna við villtan fisk.