Vinstri grænir og Sjálfstæðisflokkurinn eru að missa fylgi sitt vegna orkupakkamálsins, en nú könnun MMR leiðir í ljós umtalsverða breytingu á fylgi flokkanna. Í þættinum Fréttir vikunnar í dag ræddu þau Arnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson meðal annar um niðurstöður könnunarinnar
„það vekur athygli hverjir missa fylgi og hverjir bæta við sig, þetta er talsverð breyting sem er að eiga sér stað„,sagði Arnþrúður.
Pétur benti þá á að fylgishrun Sjálfstæðisflokksins gæti aukist enn “ það gæti vel farið svo að Miðflokkurinn yrði stærri en Sjálfstæðisflokkurinn ef Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að samþykkja þriðja orkupakkann, það munar aðeins 4,8 prósentum á þeim núna, óvinsældir orkupakkans eru mun meiri núna en þegar þingið fór í frí„sagði Pétur.
Jarðakaup útlendinga: Katrín getur ekki mismunað kaupendum jarða
Í þættinum voru fjölmörg önnur fréttamál rædd og má þar til dæmis nefna líflátshótanir af hálfu hælisleitanda, stöðuna innan Pírata. afskipti íslendinga af fíkniefnastríðinu á Filippseyjum og jarðakaup útlendinga og ummæli Katrínar Jakobsdóttur í fjölmiðlum þar sem hún boðaði íhlutun af hálfu ríkisvaldsins vegna jarðakaupa auðgra útlendinga
“ það má hún ekki, hún má ekki setja einhverjar sér reglur yfir auðmenn umfram aðra, það eru allir frjálsir að því að kaupa jarðir, hins vegar getur hún sett skilyrði fyrir því að menn hafi heimilisfesti á Íslandi til þess að þeir geti keypt jarðir„. sagði Arnþrúður.
Pétur sagði að með útspili sínu væri Katrín að reyna að slá pólitískar keilur “ hún er þarna að tala um auðmenn, það vekur upp tilfinningar og hún heldur að þannig styrki hún stöðu sína innan þessa flokks sem var einu sinni vinstri sinnaður félagshyggjuflokkur en enginn veit hvað hann er nú“, segir Pétur.
Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.