Fríverslunarsamningar undirritaðir á Sauðárkróki í dag

Í dag verða tveir fríverslunarsamningar undirritaðir á Sauðárkróki. Undirritunin fer fram í tengslum við ráðherrafund Fríverslunarsamtaka Evrópu sem haldinn er á Sauðárkróki. Í tilkynningu segir að annars vegar verði skrifað undir nýjan fríverslunarsamning EFTA við Ekvador og hins vegar verði uppfærður fríverslunarsamningur við Tyrkland undirritaður.

Pablo Campana Sáenz, utanríkisviðskiptaráðherra Ekvadors, skrifar undir fyrir hönd ríkisstjórnar Ekvador og Nihat Zeybekci, efnahagsmálaráðherra Tyrklands, af hálfu tyrkneskra stjórnvalda. Fyrir hönd EFTA undirrita þau Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra, sem jafnframt stýrir fundinum, Aurelia Frick, utanríkisráðherra Liechtenstein, Torbjørn Røe Isaksen, iðnaðar- og viðskiptaráðherra Noregs og Johann N. Schneider-Amman, ráðherra efnahagsmála, menntunar og rannsókna í sambandsstjórn Sviss.
Áður en ráðherrafundurinn hefst munu þeir Guðlaugur Þór og Nihat Zeybecki eiga stuttan tvíhliða fund um ýmis málefni.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila