Frjálsíþróttafólk fagnaði góðum árangri á uppskeruhátíð

Uppskeruhátíð Frjálsíþróttasambands Íslands fór fram á dögunum en þar komu frjálsíþróttaiðkendur, þjálfarar, stjórnarfólk, aðstandendur og frjálsíþróttaunnendur saman og fögnuðu góðum árangri á árinu sem er að líða. Á hátíðinni voru veittar ýmsar viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur. Þráinn Hafsteinsson og Margrét Héðinsdóttir hlutu heiðursviðurkenningar frá Frjálsíþróttasambandi Evrópu (EAA) og Aníta Hinriksdóttir og Hilmar Örn Jónsson voru útnefnd frjálsíþróttakona og frjálsíþróttakarl ársins. Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og fyrrum spretthlaupari úr Ármanni lét sig að sjálfsögðu ekki vanta á hátíðina og hélt þar meðal annars stutta ræðu og veitti viðurkenningar.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila