Nýr Landspítali ohf., í samstarfi við Ríkiskaup og Framkvæmdasýslu ríkisins hefur afhent fjórum hönnunarteymum útboðsgögn vegna fullnaðarhönnunar nýs rannsóknahúss. Fram kemur í tilkynningu að rannsóknahúsið sé hluti af heildaruppbyggingu Nýs Landspítala við Hringbraut. Aðrar byggingar eru meðferðarkjarninn, sem er stærsta byggingin í uppbyggingu Hringbrautarverkefnisins, nýtt sjúkrahótel, sem verður tekið í notkun á árinu og bílastæða-, tækni- og skrifstofuhús.
Gunnar Svavarsson framkvæmdastjóri NLSH segir nýtt rannsóknarhús vera mikla lyftistöng fyrir starfsemi spítalans: „Fullnaðarhönnun nýs rannsóknahúss í Hringbrautarverkefninu er enn einn áfanginn í verkáætlunum NLSH. Nýtt rannsóknahús mun skapa mikið hagræði hjá Landspítalanum vegna sameiningar allrar rannsóknastarfsemi spítalans á einn stað. Þá eru samlegðaráhrif við Háskóla Íslands mikil, en skólinn mun reisa glæsilegt nýtt hús heilbrigðisvísindasviðs sem verður tengt rannsóknahúsinu. Samkvæmt okkar áætlunum mun nýtt rannsóknahús verða tekið í notkun á árinu 2024 í samræmi við fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar.“ segir Gunnar.
Hönnunarteymin fjögur sem stóðust kröfur sem gerðar voru í forvalinu eru:
Grænaborg (Arkstudio ehf, Hnit verkfræðistofa, Landmótun, Raftákn, Yrki arkitektar)
Mannvit og Arkís arkitektar
Corpus3 (Basalt arkitektar, Hornsteinar arkitektar, Lota ehf og VSÓ ráðgjöf)
Verkís og TBL