Fulltrúar kínverska kommúnistaflokksins, CPC, heimsóttu Ísland á dögunum og óskuðu eftir fundi með Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra. Á fundinum kynntu fulltrúar CPC meðal annars hugmyndir flokksins að auknu samstarfi við önnur ríki, þar á meðal Ísland og sýna framtíðarsýn í efnahags og viðskiptamálum. Fjármála- og efnahagsráðherra fór á fundinum meðal annars yfir stöðu efnahagsmála á Íslandi og þróun þeirra allt frá efnahagshruninu 2008 til dagsins í dag og gerði grein fulltrúum grein fyrir stöðunni í samanburði við önnur OECD ríki.