Könnun: Miðflokkurinn með rúmlega 62% fylgi og Flokkur fólksins 19 %

Miðflokkurinn og Flokkur fólksins eru með mest fylgi flokka samkvæmt skoðanakönnun Útvarps Sögu.

Lang flestir myndu kjósa Miðflokkinn ef gengið yrði til kosninga í dag og næst flestir myndu kjósa Flokk fólksins Þetta kemur fram í niðrstöðu könnunar Útvarps Sögu sem fram fór hér á vefsíðunni um helgina.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Hvaða flokk myndir þú kjósa ef gengið yrði til Alþingiskosninga í dag? Niðurstaðan var eftirfarandi:

Miðflokkurinn 62,4%

Flokkur fólksins 19,1%

Sjálfstæðisflokkurinn 6,5%

Annað 5,3%

Sósíalistaflokks Íslands 2,3%

Samfylkingin 2,1%

Framsóknarflokkurinn 1,3%

Píratar 0,9%

Viðreisn 0,4%

Vinstri grænir 0,4%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila