Það gæti verið tvíeggja sverð að áfrýja niðurstöðu Mannréttindadómstóls Evrópu. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Guðmundar Kjartanssonar hagfræðings sem var gestur í þætti Markúsar Þórhallssonar í dag. “ með áfrýjun gæti falist í því ákveðin viðurkenning af hálfu Íslands hvað varðar lögsögu dómstólsins í þessu máli, þannig að menn ættu að íhuga það vel og kanna vel ofan í kjölin hvað slík áfrýjun þýðir áður en sú ákvörðun er tekin„,segir Guðmundur. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.