Gagnrýnir framgöngu RÚV í fóstureyðingarmálinu harðlega

Inga Sæland.

Inga Sæland hefur sent frá sér yfirlýsingu á fjölmiðla þar sem hún gagnrýnir framgöngu RÚV í fóstureyðingarmálinu harðlega og segir fjölmiðilinn meðal annars hafa aðeins fjallað um aðra hlið málsins, og vísar Inga meðal annars í viðtal við konu sem gekkst undir fóstureyðingu eftir venjubundinn tíma “  kvöldið áður en lokaatkvæðagreiðsla í þessu erfiða og viðkvæma máli fer fram á þingi, kaus fréttastofa Ríkisútvarpsins að senda út sjónvarpsviðtal við móður barns sem hafði séð sig tilneydda til að fara í fóstureyðingu. Þarna kaus fréttastofan að fjalla um jaðartilfelli harms og sársauka í því skyni að búa til réttlætingu fyrir því að skilyrðislaust verði heimilt að eyða fóstrum allt til fram að 23. viku meðgöngu.  Fréttastofan hefur aldrei á neinum tímapunkti reynt að varpa ljósi á önnur tilfelli ljóss og gleði þar sem fyrirburar hafa lifað og vaxið upp sem heilbrigð börn. Í síðustu viku sendi ég fyrir hvatningu og með samþykki foreldra öllum fjölmiðlum eitt slíkt dæmi með ljósmyndum. Fréttastofa Ríkisútvarpsins sá enga ástæðu til að fjalla um það„,segir Inga í yfirlýsingunni. Þá segist Inga afar ósátt við samsetningu fréttarinnar “ Fréttastofa Ríkisútvarpsins hefur ekki gefið mér kost á neinu tækifæri til að svara fyrir þá ásökun sem kom fram í ofangreindu sjónvarpsviðtali í gærkvöldi, að konan hefði verið kölluð morðingi. Í þessari frétt var hins vegar með ísmeygilegu myndmáli augljóslega gefið til kynna að ég væri sek um að hafa látið slík orð falla. Það hef ég aldrei gert. Með þessari yfirlýsingu fordæmi ég vinnubrögð fréttastofu Ríkisútvarpsins.“.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila