Garnaveiki hefur greinst á sauðfjárbúi í Húnavatnshreppi. Tilfellið er þó ekki það eina sem greinst hefur í hreppnum því á síðastliðnum 10 árum hafa tvö tilfelli greinst á tveimur öðrum bæjum á svipuðum slóðum. Í tilkynningu frá Matvælastofnun kemur fram að í sýni frá héraðsdýralækni norðvesturumdæmis sem tekið var úr kind á bænum hafi greinst garnaveikibaktería en garnaveiki er náskyld berklum, er ólæknandi og smitast á milli dýra með saurmenguðu vatni eða fóðri. Þó er hægt að verjast smiti með því að bólusetja fé sem er ósmitað en sé dýrið þegar smitað kemur bólusetning ekki í veg fyrir áframhaldandi þróun sjúkdómsins. Hérlendis hefur garnaveiki ekki verið áberandi á síðustu áratugum en þó koma upp einstaka tilvik á nokkurra ára fresti að meðaltali.