Gefur lítið fyrir skýringar HB Granda

Magnús Þór Hafsteinsson ritstjóri Vesturlands og fyrrverandi þingmaður.

Magnús Þór Hafsteinsson ritstjóri Vesturlands og fyrrverandi þingmaður segist gefa lítið fyrir þær skýringar sem HB Grandi hefur gefið á fjöldauppsögnum fyrirtækisins á Akranesi. Magnús sem var gestur Péturs Gunnlaugssonar í síðdegisútvarpinu í dag telur skýringanna að leita annars staðar og menn eigi að segja sannleikann “ menn eiga bara að segja sannleikann, tala bara hreint út, segja hvernig þetta liggur, segja hvað þeir eru að hugsa og koma bara hreint fram við fólkið„,segir Magnús.

 

 

 

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila