Íslendingar hafa brugðist afar vel við þeirri neyð sem hefur skapast vegna náttúruhamfaranna sem urðu á Grænlandi á dögunum og hefur talsvert fé safnast eða um 12 milljónir króna sem renna óskiptar til uppbyggingar á hamfarasvæðinu. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Hrafns Jökulssonar forsvarsmanns söfnunarinnar Vinir í verki og Ingu Dóru Guðmundsdóttur framkvæmdastjóra Vestnorræna ráðsins í síðdegisútvarpinu í dag en þau voru gestir Magnúsar Þórs Hafsteinssonar. Þau segja íslendinga hafa sýnt í verki undanfarna daga hversu sterk vinatengsl þjóðanna tveggja eru en hamfarirnar voru afar umfangsmiklar “ það skapaðist gríðarlega mikil óvissa fyrst og fremst, það lá ljóst fyrir að þarna hafði heilt þorp nánast sópast út á haf, þá fór auðvitað heilmikið af stað bæði á Grænlandi, hjá þeim að bregðast við en líka hjá okkur hérna heima, undir svona kringumstæðum þá skiptir það miklu máli að bregðast fljótt við„,segir Hrafn.
Smelltu hér til þess að skoða nánari upplýsingar um söfnunina