Guðlaugur Þór fundaði með James Mattis í Pentagon

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og James Mattis varnarmálaráðherra Bandaríkjanna.MYND/Pentagon

Samvinna Íslands og Bandaríkjanna í öryggis- og varnarmálum og innan Atlantshafsbandalagsins voru meðal umræðuefna á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, utanríkisráðherra, og James Mattis varnarmálaráðherra Bandaríkjanna í Washington í gær.

Samvinna Íslands og Bandaríkjanna í öryggis- og varnarmálum á sér langa sögu og hefur þróast í áranna rás. Undanfarin ár hefur samstarf ríkjanna farið mjög vaxandi samhliða breyttu öryggisumhverfi í Evrópu og á norðanverðu Atlantshafi. Atlantshafstengslin eru mikilvægari nú sem aldrei fyrr og gagnkvæmar skuldbindingar Íslands og Bandaríkjanna standa óhaggaðar. Við fórum yfir mikilvægi samstöðu vestrænna ríkja sem deila sömu gildum í því breytilega öryggisumhverfi sem við búum við,“ segir Guðlaugur Þór.
Á fundinum ræddu ráðherrarnir helstu áherslumál á vettvangi Atlantshafsbandalagsins í aðdraganda leiðtogafundar bandalagsins í sumar, þ.m.t. auknar áherslur á mikilvægi Norður-Atlantshafsins. Einnig var loftrýmisgæsla og kafbátarleit og varnaræfingin Trident Juncture 2018 til umfjöllunar. Þá voru helstu viðfangsefni á alþjóðavettvangi til umræðu, þ.m.t. málefni Miðausturlanda og staða mála á Gaza. Einnig voru málefni norðurslóða á meðal fundarefna.
Ísland er meðal stofnríkja Atlantshafsbandalagsins og borgaralegt framlag Íslands í þágu eigin og sameiginlegra varna bandalagsríkja, sem hefur farið vaxandi á umliðnum árum, er vel metið hér vestan hafs og Ísland álitið áreiðanlegt og trúverðugt bandalagsríki,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson.
Utanríkisráðherra átti einnig fundi með Dan Sullivan og Lisu Murkowski, öldungardeildaþingmönnum Alaska, þar sem fríverslun og fjárfestingar, sem og málefni norðurslóða og fyrirhuguð formennska Íslands í Norðurskautsráðinu á næsta ári voru til umræðu.
Þá átti Guðlaugur Þór einnig fundi með háttsettum embættismönnum í þjóðaröryggisráði Bandaríkjanna þar sem málefni Miðausturlanda og samskiptin við Rússland voru til umræðu. Þá ávarpaði ráðherra hugveituna Heritage Foundation þar sem viðskiptamál, öryggismál og norðurslóðamál voru í brennidepli.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila