„Guðleysi er alræðishyggja eins og kommúnismi og Islam“

hallurhallsfrettaHallur Hallsson sagnfræðingur og blaðamaður segir guðleysi vera alræðishyggju líkt og kommúnisma og Islam sem leiði af sér ofbeldi. Hallur sem var gestur Péturs Gunnlaugssonar í síðdegisútvarpinu í vikunni segir grafalvarlegt að guðleysi fari vaxandi í Evrópu þar sem Evrópubúar hafi slæma reynslu af guðleysi frá fyrri tíð “ það er bara grafalvarlegt mál að sjá guðleysi aftur í vexti í Evrópu og líka í Bandaríkjunum áttatíu til hudrað árum eftir að guðleysi tók yfir álfuna, tók yfir Rússland og breytti því í ráðsstjórnarríki, tók yfir Þýskaland, tók yfir hvert ríkið á fætur öðru, og guðleysingjar líða ekki öðrum aðrar skoðanir en þeir hafa„segir Hallur.

 

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila