Hæfniramma ætlað að auka gegnsæi innan menntakerfisins

menntun1Mennta- og menningarmálaráðuneyti, Alþýðusamband Íslands, Samtök atvinnulífsins, BSRB, Kvasir, Leikn, Bandalag háskólamanna, Samtök íslenskra framhaldsskólanema og Landssamtök íslenskra stúdenta undirrituðu í vikunni yfirlýsingu um hæfniramma um íslenska menntun sem ætlað er að endurspegla stigvaxandi hæfnikröfur í formlegu og óformlegu námi á Íslandi. Fram kemur í tilkynningu frá Mennta og menningarmálaráðuneytinu að undirritunin marki tímamót hvað varðar áherslu á sýnileika ævilangrar menntunar sem fer fram bæði við nám og störf en hæfniramminn nýtist fyrst og fremst almenningi sem tenging milli formlegs og óformlegs náms.
Hæfniramminn hefur tvíþættan tilgang; annars vegar að auka gagnsæi innan menntakerfis viðkomandi lands og hinsvegar að auka gagnsæi milli evrópskra menntakerfa.  Íslenski hæfniramminn telur sjö hæfniþrep og endurspegla hækkandi þrep auknar hæfnikröfur. Þrepin endurspegla þær kröfur sem gerðar eru til einstaklingsins er varða þekkingu, leikni og hæfni í verkefnum, vinnu og samskiptum. Hæfniramminn eykur þannig gagnsæi og varpar ljósi á þá hæfni sem einstaklingur býr yfir að loknu námi á tilteknu þrepi. Upplýsingar um hæfni má t.a.m. nýta í ferilskrá, við starfsþróun og í umsókn um  nám. Gert er ráð fyrir að aðilar yfirlýsingarinnar verði samábyrgir fyrir innleiðingu og kynningu á hæfnirammanum en lagt er sérstaka áherslu á að þróaðar verði aðferðir við að skilgreina námslok og tengja óformlegt nám við hæfniþrep rammans.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila