Haraldur Einarsson þingmaður Framsóknarflokksins hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í komandi þingkosningum og mun því hætta á þingi í haust. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Haraldi sem hann sendi á fjölmiðla nú í morgun. Í tilkynningunni segir Haraldur að hann hafi í samráði við fjölskyldu sína að gefa ekki kost á sér þar sem hann hafi ákveðið að söðla um og hefja búskap á bænum Urriðafossi ásamt foreldrum sínum. Þá segir jafnframt í tilkynningunni „ Ég er þakklátur og stoltur fyrir þann tíma sem ég hef fengið að vinna fyrir land og þjóð. Ég er stoltur af verkum ríkisstjórnarinnar undir forystu Framsóknarflokksins og það er ekki allt sem sýnist inni á Alþingi. Hvet að lokum alla þá, sem vilja leggja sitt af mörkum til að gera þjóðfélagið okkar betra og sanngjarnara að bjóða sig til starfa á löggjarfarsamkomunni„.