Halda ráðstefnu um breytt öryggisumhverfi smáríkja

Rannsóknarsetur um smáríki mun næstkomandi þriðjudag standa fyrir ráðstefnu í Háskóla Íslands um breytt öryggisumhverfi smáríkja.

Í tilkynningu segir að hátt í 30 frummælendur frá 13 löndum og fjórum heimsálfum komi saman til að ræða helstu áskoranir og tækifæri smáríkja til áhrifa á sviði öryggismála. Þá segir að sjaldan eða aldrei hafi verið jafn mikilvægt að búa til vettvang fyrir slíka umræðu í þeirri spennu sem nú ríki í samskiptum ríkja.

Viðfangsefnin spanna vítt svið öryggismála en á meðal þess sem verður fjallað sérstaklega um eru skoðanir og upplifun íslensks almennings á öryggi, staða hlutlausra Evrópuríkja, aukið samstarf Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna í kjölfar átakanna á Krímskaga, áhrif aukinnar spennu í samskiptum vesturveldanna við Rússland á smáríki, samskipti Nýja-Sjálands við Kína, möguleg aðild Georgíu að NATO, öryggisáskoranir smáríkja í Afríku og orkuöryggi smáríkja.
Ráðstefnan er hluti af SSANSE, þriggja ára rannsóknaverkefni sem Rannsóknasetur um smáríki við Háskóla Íslands leiðir með styrk frá NATO.

Frekari upplýsingar um verkefnið má finna á heimasíðu Alþjóðamálastofnunar, en þar fer jafnframt skráning á ráðstefnuna fram,

www.ams.hi.is.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila