Halda ráðstefnu um réttarstöðu og velferð barna við andlát foreldris

missingparentInnanríkisráðuneytið og Velferðarráðuneytið í samstarfi við Rannsóknarstofnun í barna- og fjölskylduvernd við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands standa að ráðstefnu um réttarstöðu og velferð barna við andlát foreldris miðvikudaginn 12. október næstkomandi. Ráðstefnan fer fram í Norræna húsinu og stendur frá klukkan 9 til 12.  Á ráðstefnunni  verður meðal annars fjallað um rannsóknir á stöðu barna við slíkar aðstæður, íslensk lög sem málið snerta, sagt frá tilraunaverkefni og endað á pallborðsumræðum um efnið. Markmið ráðstefnunnar er meðal annars að miðla þekkingu um stöðu málefnisins, vekja umræðu og hafa áhrif til umbóta á réttarstöðu ungra barna og þjónustuúrræðum fyrir fjölskyldur. Ólöf Nordal innanríkisráðherra setur ráðstefnuna og síðan verða flutt erindi um efnið en í lok dagskrár verður boðið upp á pallborðsumræður. Fundarstjóri er Anna Rós Jóhannesdóttir, yfirfélagsráðgjafi Landspítalans. Ráðstefnan verður öllum opin og er aðgangur ókeypis.
Dagskrá ráðstefnunnar er eftirfarandi:
  • 09:00 – 09:10    Setning: Ólöf Nordal, innanríkisráðherra.
  • 09:10 – 09:40    Rannsóknin: Staða barna við andlát móður úr krabbameini – raddir barnanna: Sigrún Júlíusdóttir, prófessor við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands.
  • 09:40 – 10:00     Íslensk löggjöf sem snertir rétt og velferð barna við andlát foreldris: Hrefna Friðriksdóttir, prófessor í fjölskyldu- og erfðarétti við lagadeild Háskóla Íslands.
  • 10:00 – 10:20     Kaffihlé
  • 10:20 – 10:40     Niðurstöður lokaritgerða við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands um stöðu barna við andlát foreldris: Edda Jóhannsdóttir, Elfa María Gísladóttir og Sólveig Björg Arnarsdóttir.
  • 10:40 – 11:00     Sjálfstæður réttur barns í sjúkdómsferli og við andlát foreldris: Vigfús Bjarni Albertsson, sjúkrahúsprestur á Landspítala.
  • 11:00 – 11:20     Forvarnir – tilraunaverkefni á Landspítala tengt Fjölskyldubrúnni: Gunnlaug Thorlacius, formaður Geðverndarfélags Íslands, félagsráðgjafi á Landspítala.
  • 11:20 – 11:50     Panel umræður: Séra Bragi Skúlason, Dögg Pálsdóttir, lögfræðingur, Elísabet Gísladóttir, lögfræðingur hjá umboðsmanni barna, Halldóra Hálfdánardóttir, deildarstjóri hjúkrunar krabbameinsdeildar Landspítalans, Sigurður Rafn Levy, sálfræðingur á barna- og unglingageðdeild, Valgerður Sigurðardóttir, yfirlæknir á líknardeild Landspítalans  og Þóra Jónsdóttir, lögfræðingur hjá Barnaheillum – Save the Children á Íslandi.
  • 11:50 – 12:00    Lokaorð: Fulltrúi innanríkisráðuneytis eða velferðarráðuneytis.
  • 12:00                 Ráðstefnulok

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila