Haukur Guðmundsson skipaður ráðuneytisstjóri dómsmálaráðuneytis

Haukur Guðmundsson hefur verið skipaður ráðuneytisstjóri dómsmálaráðuneytis.

Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra hefur skipað Hauk Guðmundsson héraðsdómslögmann ráðuneytisstjóra dómsmálaráðuneytis frá 1. júní næstkomandi. Embættið var auglýst 10. apríl og voru umsækjendur 12 en tveir drógu umsóknir sínar til baka. Þriggja manna hæfnisnefnd fór yfir umsóknirnar og var Haukur á meðal umsækjenda sem metnir voru hæfir.

Haukur Guðmundsson lauk lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands 1996 og aukaeiningum í hagfræði og stjórnmálafræði. Hann hefur réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi og hefur einnig lokið fjölda námskeiða á sviði lögfræði.

Haukur hefur verið sjálfstætt starfandi lögmaður frá árinu 2012 og var settur í tvígang ad hoc forstjóri Samkeppniseftirlitsins, annars vegar í apríl 2014 og hins vegar í september 2015. Þá hefur hann gegnt formennsku í gjafsóknarnefnd frá 2015 og úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki frá 2012. Haukur hefur einnig sinnt verkefnum fyrir innanríkisráðuneytið um einstök mál tengd stofnanaskipulagi og samstarfi stofnana á sviði útlendingamála og verksviði Björgunarmiðstöðvarinnar í Skógarhlíð. Þá starfaði Haukur einnig um árabil hjá dómsmálaráðuneytinu, fyrst árin 1998 til 2001 og aftur 2004 til 2010, að undanskildu einu ári þegar hann var settur forstjóri Útlendingastofnunar. Hjá dómsmálaráðuneytinu var Haukur m.a. skrifstofustjóri einkamála og borgaraskrifstofu og sinnti þar m.a. kærumálum, stefnumótun og stjórnsýslu á sviði persónuréttar og útlendingamála. Haukur gegndi einnig starfi fulltrúa hjá sýslumanninum í Hafnarfirði um tveggja ára skeið og var aðstoðarmaður dómara við Hæstarétt Íslands. Þá var hann sendifulltrúi hjá sendiráði Íslands í Brüssel árin 2001–2004.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila