Það hefði átt að senda sendiherra Bretlands heim, og stjórnvöld hefðu átt að gera allt vitlaust innan NATO þegar bretar beittu hryðjuverkalögum gegn Íslandi. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Jóhannesar Þórs Skúlasonar sem var einn af forsvarsmönnum Indefence hópsins sem vann að því að lagfæra orðspor Íslands eftir bankahrunið, í þætti Markúsar Þórhallssonar í dag. Jóhannes segir að þegar símtalið kom þar sem honum var boðið að vera með í Indefence hafi hann litið á það sem þegnskyldu sína að vera með, ekki síst vegna þeirrar stöðu að hryðjuverkalögum hafði verið beitt gagnvart Íslandi. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.