Árásir glæpahópa á hvorn annan og eðli þeirra dansa á línunni og eru á jaðri þess að geta talist til hryðjuverka. Þetta var þess sem fram kom í máli Gústafs Skúlasonar í þættinum Heimsmálin, fréttir og fréttatengt efni af erlendum vettvangi í dag en hann var viðmælandi Péturs Gunnlaugssonar. Gústaf segir að bæði sé um að ræða innfædda og einstaklinga af erlendu bergi brotna sem séu meðlimir þessara hópa, en uppgangur slíkra hópa hafi þó stóraukist með auknum innflutningi á fólki“ og nú eru menn loksins farnir að ræða þá ógn af einhverri alvöru, hér hefur aldrei mátt ræða það á þeim forsendum að þarna séu einstaklingar af erlendu bergi brotnir sem meðal annars standa að þessu og stofna erlend glæpagengi„,segir Gústaf. Hann segir átökin milli glæpahópa fara sífellt vaxandi og aukin harka sé orðin ógn við íbúa landsins en á dögunum sprakk öflug sprengja í íbúðarblokk í Linköping sem rakin er til slíkra átaka “ í mínum huga er þetta ekkert annað en hryðjuverk„,segir Gústaf. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.