Heyrnarfræðingar löggiltir sem heilbrigðisstétt

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur sett reglugerð sem kveður á um menntun, réttindi og skyldur heyrnarfræðinga og skilyrði til að hljóta starfsleyfi. Fram kemur í tilkynningu að reglugerðin feli í sér löggildingu stéttarinnar og þar með hafa þeir einir rétt til að kalla sig heyrnarfræðinga og starfa sem slíkir hér á landi sem hafa fengið til þess leyfi landlæknis. Þá segir í tilkynningunni að ákvörðun ráðherra um að löggildingu heyrnarfræðinga sé í samræmi við tillögur starfshóps sem þáverandi heilbrigðisráðherra skipaði í ágúst 2017 til að fara yfir þjónustu við einstaklinga með heyrnarskerðingu og talmein með það að markmiði að hún verði sem best. Fram kom í umfjöllun starfshópsins um tillögurnar að mikilvægt væri að við greiningu á heyrnarskerðingu væri unnið samkvæmt viðurkenndri þekkingu, fræðum og fagmennsku. Því var það mat hópsins að brýnt væri að gera heyrnarfræðinga að löggiltri heilbrigðisstétt til að tryggja gæði þjónustunnar sem þeir veita

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila