Hildur Sverrisdóttir biðst lausnar

Hildur Sverrisdóttir

Hildur Sverrisdóttir

Hildur Sverrisdóttir hefur óskað eftir því að verða veitt lausn frá embætti borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Hildi.Hildur biðst lausnar vegna þess að hún hefur tekið sæti Ólafar Nordal á Alþingi í kjölfar fráfalls Ólafar sem féll frá fyrr í þessum mánuði. Í tilkynningunni segir Hildur meðal annars “ Lausnarbeiðnin verður formlega tekin fyrir á borgarstjórnarfundi þann 7.mars næstkomandi þar sem ég mun óska eftir því við borgarstjórn, með vísan til 2. mgr. 30. gr. sveitarstjórnarlaga, að mér verði veitt lausn frá öllumstörfum mínum fyrir borgarstjórn. Þangað til mun ég eftir fremsta megni koma útistandandi málum í góðan farveg. Ég hef haft mikla ánægju af starfi mínu sem borgarfulltrúi en tel betra að öll mikilvægu verkefnin sem bíða beggja megin Vonarstrætis fái óskipta athygli. Ég mun halda áfram að vinna fyrir Reykvíkinga í störfum mínum á Alþingi eins og við á. Ég þakka gott samstarf við borgarfulltrúa og embættismenn borgarinnar undanfarin ár„.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila