HM stemning í Bíó Paradís

Bíó Paradís ætlar á næstu misserum að bjóða gestum og gangandi upp á að horfa á alla leiki HM í Rússlandi í beinni útsendingu frítt þar til keppni lýkur.

Í tilkynningu frá Bíó Paradís segir að sýningarnar verða í bestu mögulegu hljóð og myndgæðum og ýmis góð tilboð á barnum. Þá verður sérstakt HM borð þar sem gestum verður boðið að kaupa ýmsan varning tengdum HM. Einnig verður yngstu aldurshópunum boðið upp á frítt krakkabíó á meðan leikjum stendur.

Smelltu hér til þess að skoða dagskrá Bíó Paradísar.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila