Hófu beint flug milli Keflavíkur og Akureyrar í morgun

SONY DSC

Beint innanlandsflug Flugfélags Íslands milli Keflavíkur og Akureyrar hófst í morgun en flogið verður allan ársins hring milli þessara áfangastaða. Er það von Flugfélagsins að þetta auðveldi íbúum á Norðurlandi að nýta sér enn frekar millilandaflug til og frá Íslandi og auðveldi að sama skapi erlendum ferðamönnum að komast beint til Norðurlands.

Við kynntum þessa hugmynd síðasta haust og viðbrögðin viðskiptavina okkar og hvatning Norðlendinga sýndu svo sannarlega að áhuginn er mikill á henni. Þetta auðveldar að sjálfsögðu dreifingu ferðamanna sem koma til landsins og að sama skapi auðveldar allt ferðalag fyrir þá sem eru að koma úr eða fara í millilandaflug,“ segir Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands.
Samkvæmt tilkynningu frá Flugfélagi Íslands verður flogið sex sinnum í viku yfir vetrartímann og að lágmarki tvisvar í viku yfir sumartímann og fyrst um sinn verður þessi þjónusta í boði fyrir þá sem eru á leið í eða úr millilandaflugi í Keflavík og geta því ferðast alla leið frá Akureyri til endanlegs áfangastaðar í Evrópu eða Norður Ameríku og heim aftur.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila