Búist er við að stærstu bankar Evrópu birti árlegu efnahagsskýrslu sína fyrir lok þessarar viku. Helstu álitsgjafar og hagfræðingar hafa látið hafa eftir sér að þeir óttist að skýrslan muni sýna fram á að nýtt bankahrun sé yfirvofandi, hrun sem sé mun stærra en bankahrunið 2008, sem sé í raun dvergvaxið á við það hrun sem gæti orðið fari allt á versta veg. Eins og kunnugt er hafa bæði Alþjóða Gjaldeyrissjóðurinn og ríkisstjórn Þýzkalands hafnað þeim möguleika að bjarga bönkum lendi þeir í kreppu en heimildir herma að Deutsche Bank, RBS, Lloyds, Unicredit, Intesa SanPaolo og BMPS þurfi allir á ríkisstyrkjum að halda ætli þeir að geta haldið áfram starfsemi. David Hendler hjá áhættufyrirtækinu Viola Risk í New York segir að á næstu tveimur dögum komi í ljós hvert framhaldið verði en verði skýrslan svört gæti er ljóst að ástandið geti haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar út um allan heim. „Þegar stór banki í Evrópu, því miður Deutsche Bank, fer inn í dauðaskrúfuna munu margir aðrir stórir bankar í Evrópu sogast niður í haf bankadauðans í Evrópu. ítalska bankakerfið er lamað og án útgöngudyra, franskir bankar eru blóðlausir og breskir bankar taka ekki á málum af heilum hug, þessir stóru bankar eru enginn sérstakur hópur bjargvætta. Ef stærsti banki Evrópu hrynur gæti sjúkdómurinn breiðst um allt eins og eldur í sinu sem umlyki meirihluta bankakerfis Evrópu og gæti leitt til farsóttar peningaskorts í öllu bankakerfi Evrópu„,segir David.