Inga segir Ólaf og Karl Gauta hafa verið komna yfir í Miðflokkinn fyrir löngu

Inga Sæland formaður Flokks fólksins.

Ólafur Ísleifsson og Karl Gauti Hjaltason sem reknir voru úr Flokki fólksins voru löngu komnir yfir í Miðflokkinn, en þó ekki formlegum hætti. Þetta kom fram í máli Ingu Sæland formanni Flokks fólksins sem hringdi inn í símatímann á Útvarpi Sögu í morgun. Inga segir að þeir sem gagnrýni brottrekstur Ólafs og Karls Gauta viti ekki nema hálfa söguna “ það var mikið búið að ganga á áður og það var mikið búið að reyna að halda þessu saman sem hefði verið besti kosturinn en þeir voru í raun bara löngu komnir yfir í Miðflokkinn, en eins og ég segi var mikið búið að vera í gangi og þingflokkurinn í rauninni orðinn óstarfhæfur vegna þess og því var þetta niðurstaðan, við erum ekkert að bera allt upp á torg sem gerist innan flokksins„,segir Inga. Hlusta má á símtalið við Ingu hér í spilaranum að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila