Tilkynningum um innbrot á heimili talsvert ef miðað er við fjölda síðustu sex og 12 mánuði á undan en slík innbrot voru um 67 talsins í desember. Þetta kemur fram í nýútgefinni afbrotatölfræði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir einnig að tilkynningum um kynferðisbrot hafi fjölgað einnig nokkuð í desember miðað við fjölda síðustu sex og 12 mánuði á undan. Alls bárust 26 tilkynningar um kynferðisbrot sem áttu sér stað í desember. Akstri undir áhrifum ávana- og fíkniefna fjölgaði talsvert á milli mánaða en alls voru þau brot um 160 talsins. Málum þar sem grunur leikur á ölvun við akstur fjölgaði einnig á milli mánaða og einnig ef miðað er við síðustu 12 mánuði á undan. Þá segir að þegar horft sé á heildartölur komi í ljós að tilkynningum um meint hegningarlagabrot hafi fækkað en í desember bárust 684 slíkar tilkynningar og því hefur tilkynningum fækkað milli mánaða. Smelltu hér til þess að skoða afbrotatölfræði lögreglu nánar.