Íraski herinn hefur náð flugvellinum í Mosul úr höndum liðsmanna ISIS en írakar hafa sótt hart að hryðjuverkasamtökunum í vesturhluta borgarinnar á síðustu klukkustundum. Tugþúsundir hermanna taka þátt í aðgerðunum gegn ISIS en búist er við að átökin eigi eftir að harðna enn frekar á næstu klukkustundum, en sérfræðingar telja að átökin gætu orðið þau blóðugustu frá því átökin hófust, en fregnir herma að mikið mannfall hafi orðið meðal liðsmanna ISIS á þeim tíma sem þau hafa staðið yfir.