Ísland leiðir hóp 39 ríkja í mannréttindarráði Sameinuðu þjóðanna

Ísland hefur að undanförnu tekið virkan þátt í umræðu á vettvangi mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna í Genf um vegna þróunar mannréttindamála á Filippseyjum. Í febrúar sl. flutti Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, ræðu í mannréttindaráðinu, fyrstur íslenskra utanríkisráðherra, og vakti máls á stöðu mála í Filippseyjum. Í maí sl. flutti fulltrúi Íslands sérstaka ræðu um ástandið á Filippseyjum þegar Filippseyjar undirgengust svokallaða jafningjarýni mannréttindaráðsins. Þar beindu fjölmörg ríki sérstökum tilmælum til Filippseyja um úrbætur í mannréttindamálum.  Á júnífundi mannréttindaráðsins áréttuðu íslensk stjórnvöld gagnrýni sína á stöðu mannréttinda á Filippseyjum og tóku 32 ríki undir þá ræðu. Nú í september, þegar jafningjarýni Filippseyja var afgreidd formlega, þótti ljóst að ástand mannréttindamála í landinu hefði ekki breyst til batnaðar og að stjórnvöld þar í landi hygðust hundsa þorra tilmæla um breytingar sem til þeirra hefði verið beint. Í því ljósi var ákveðið að ítreka enn frekar mikilvægi þess að stjórnvöld á Filippseyjum virði almenn mannréttindi þegna sinna og standi við alþjóðlegar skuldbindingar sínar. Alls tóku 39 ríki undir málflutning Íslands

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila