Íslensk yfirvöld hafa samþykkt að Ísland verði aðili að Marrakesh samkomulaginu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Forsætisráðuneytinu. Í tilkynningunni segir meðal annars að tilgangur samþykktarinnar sé að að bæta viðbrögð alþjóðasamfélagsins við vaxandi fólksflutningum. Þá segir í tilkynningunni “ Samþykktin byggir á núgildandi mannréttindasamningum og um er að ræða samstöðuyfirlýsingu aðildarríkja og hvatningu til þeirra um mannsæmandi meðferð á farendum og málefnum þeirra, sem víða um heim hefur verið í miklum lamasessi. Árið 2016 samþykkti sérstakur leiðtogafundur Sameinuðu þjóðanna svokallaða New York-yfirlýsingu um málefni flóttafólks og farenda. Samþykktin er unnin á grundvelli þessarar yfirlýsingar. Formlegar samningaviðræður hófust í febrúar 2018 og tók Ísland þátt í þeim.“.