Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra hefur ákveðið að bæta 75 milljónum á næstu tveimur árum við framlög Íslands umfram þær 800 milljónir sem áður hafði verið heitið. Í tilkynningu segir að ákvörðunin sé tekin vegna þeirra skelfilegu aðstæðna sem blasa við í Sýrlandi og stöðu sýrlenskra flóttamanna. Á fyrstu ráðstefnunni um málefni Sýrlands í fyrravor tilkynnti ráðherra að árlegt framlag Íslands yrði 200 milljónir króna á ári fram til ársins 2020.
Nú stendur yfir í Brussel önnur Sýrlandsráðstefnan á vegum Sameinuðu þjóðanna og Evrópusambandsins. Þar áréttaði Guðlaugur Þór að framlag Íslands yrði 200 milljónir á þessu ári, myndi hækka í 225 milljónir árið 2019 og verða 250 milljónir árið 2020. Árið 2017 voru framlögin 200 milljónir króna. Samtals hækka því framlög frá íslenskum stjórnvöldum um 75 milljónir vegna Sýrlands. „Við hittumst í Brussel í dag, rétt eins og við gerðum fyrir ári, í kjölfar árásar þar sem efnavopn virðast hafa verið notuð. Á síðasta ári var ráðstefnan haldin eftir hræðilegar árásir á bæinn Khan Sheikhoun, og í dag hittumst við í skugga atburðanna í Douma fyrir tveimur vikum,“ sagði Guðlaugur Þór í ávarpi á ráðstefnunni fyrr í dag.
Ráðherra ítrekaði fordæmingu Íslendinga á notkun efnavopna og sagði að Ísland myndi halda áfram að styðja allar umleitanir að pólitískum lausnum. „Sýrlenska þjóðin hefur búið við þjáningar í sjö ár og horft á hundruð þúsunda falla í valinn. Hver og einn sem er í þeirri stöðu að geta haft áhrif verður að grípa til aðgerða nú þegar. Við skorum á öryggisráð Sameinuðu þjóðanna að rísa undir áskoruninni og finna leiðir til lausnar,“ sagði utanríkisráðherra og lauk ávarpi sínu með því að segja að mikilvægustu skilaboðin frá Íslandi væru þau að Íslendingar væru talsmenn fyrir friði, virðingu og von.