Íslendingar eiga auðvelt með að aðlagast þeim loftslagsbreytingum sem kunna að verða á næstu áratugum. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings í þætti Markúsar Þórhallssonar í dag. Einar segir að þetta komi til vegna landfræðilegrar stöðu landsins, en merki um loftslagsbreytingar megi helst sjá á hækkandi yfirborði sjávar og við því sé tiltölulega auðvelt að bregðast, meðal annars að reisa hús á stöplum. Þá segir Einar að varast eigi að horfa á einstök veðurfyrirbæri sem merki um slíkar breytingar “ hins vegar ef slíkt ferli gerist endurtekið þá gætu það verið merki um varanlegar veðurbreytingar.“ Hlusta má á viðtalið í spilaranum hér að neðan.