Þegar að jólalögunum kemur eru íslendingar vandlátir og er .eim alls ekki sama um á hvaða máli jólalögin eru flutt. Þetta var meðal þess sem fram komi í máli Jens Guð bloggara í síðdegisútvarpinu í dag en hann var gestur Péturs Gunnlaugssonar. Jens segir að íslendingar vilji heldur jólalög sem sungin eru á íslensku fremur en lög sem sungin eru á öðrum tungumálum, þeim sé þó sama hvort höfundur lagsins sé erlendur enda verða oftar en ekki t,d ítölsk lög fyrir valinu þegar tónlistarmenn nýta sér tilbúin lög til jólalagagerðar. Hann bendir á að ítölsk lög henti einkar vel þegar kemur að þessu þar sem þau séu almennt ekki mikið spiluð hérlendis. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.