Snorri Magnússon formaður Landssambands lögreglumanna segir íslensku lögregluna ekki í stakk búna til þess að takast á við hryðjuverkaárásir kæmi sú staða upp að slíkar árásir yrðu gerðar hér á landi. Þetta kom fram í máli Snorra í morgunútvarpinu í morgun en hann var þar gestur Markúsar Þórhallssonar og Jóhanns Kristjánssonar. Snorri segir að ástæður þess að lögreglan gæti ekki brugðist við slíkar árásir séu til komnar vegna niðurskurðar og fjársvelti lögreglu, og segir ýmislegt skorta hjá lögreglu “ það er bara vegna niðurskurðar og þeirrar einföldu staðreyndar að það hefur ekkert verið hlustað á þær raddir sem hafa á það bent að það þarf að halda lögreglunni við, samfélagið er að breytast, það er að stækka, það er að þróast, það er að verða öðruvísi og það eru önnur verkefni að koma inn á borðið og svo framvegis, sem kallar á meiri mannskap og meiri kosnað, því miður er það bara þannig„,segir Snorri.