Íslenska lögreglan tekur þátt í öryggisgæslu á HM í Rússlandi

Fimm lögreglumenn á vegum embættis Ríkislögreglustjóra verða sendir til starfa í Rússlandi á meðan heimsmeistaramótið í knattspyrnu stendur yfir.
Í tilkynningu frá Ríkislögreglustjóra segir að hlutverk lögreglumannanna verði að aðstoða við að gæta öryggis á svæðinu, en þeir munu starfa í alþjóðlegri stjórnstöð löggæslu í Moskvu. Þá segir að Ríkislögreglustjóri muni verða í nánu og góðu samstarfi við utanríkisráðuneytið, sendiráð Íslands í Moskvu, Tólfuna og KSÍ við að safna og miðla gagnlegum upplýsingum til stuðningsmanna. Í þessum tilgangi mun ríkislögreglustjóri vera virkur á samfélagsmiðlum en þar verður upplýsingum miðlað til stuðningsmanna.
Upplýsingar verða aðallega birtar á Facebook síðu embættisins og hægt verður að vera í sambandi við lögreglumenn í stjórnstöð í gegnum þá síðu til að senda fyrirspurnir eða koma ábendingum á framfæri. Þá verður einnig haldið úti Instagram síðu þar sem birtar verða myndir frá starfi lögreglumannanna í stjórnstöð og í kringum stuðningsmannasvæði og leikvanga. Jafnframt verður Twitter notað til að koma skilaboðum áleiðis. Þeir sem eru á leið til Rússlands eru hvattir til að gerast áskrifendur að þessum síðum og fylgjast náið með því sem þar verður birt.

Facebook síðu ríkislögreglustjóra má finna á slóðinni: https://www.facebook.com/rikislogreglustjorinn
Instagram reikninginn má finna á slóðinni: https://www.instagram.com/rikislogrstj
Twitter reikning má finna á slóðinni: https://twitter.com/rikislogrstj eða @rikislogrstj

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila