Jón Pétursson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Miðflokknum.Þar segir að Jón sé fæddur 1971 , stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1991. Jón lauk prófi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1994, hann var stýrimaður til margra ára og er einn af stofnendum Miðflokksins. Jón er giftur og á einn son og er búsettur í Mosfellsbæ.