Karlmaður fannst látinn í sjónum við Vatnagarða

Karlmaður á sextugsaldri fannst látinn í morgun í sjónum norðan við Vatnagarða. Leit af manninum hófst laust eftir klukkan eitt í nótt eftir að gúmmíbátur í eigu mannsins fannst mannlaus í fjörunni við athafnasvæði Samskipa í Kjalarvogi og stóð sú leit yfir langt fram undir morgun þegar maðurinn fannst látinn. Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að ekki sé grunur um að saknæmt athæfi hafi átt sér stað, og að maðurinn hafi verið einn á ferð í bátnum. Ekki er hægt að greina frá nafni mannsins að svo stöddu.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila