Katrín fundaði með lögmanni Færeyja

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Aksel V. Johannesen lögmaður Færeyja.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, átti í gær í Færeyjum óformlegan fund með Aksel V. Johannesen, lögmanni Færeyja. Á fundinum sem haldinn var í Þinganesi ræddu þau meðal annars  stjórnmálaástandið í Færeyjum og á Íslandi, samskipti ríkjanna og ítrekaður var ríkur vilji beggja landa til að endurnýja samninga á sviði sjávarútvegsmála. Þá ræddu þau þær áskoranir sem uppi eru vegna Hoyvíkursamningsins.  Katrín sagði að fundinum loknum að vinátta Íslendinga og Færeyinga væri um margt einstæð og mikilvægt væri að rækta þau ríku tengsl sem eru milli þessara tveggja þjóða.

Í dag verður Katrín aðalræðumaður á landsfundi Þjóðveldisflokksins sem haldinn er í Klakksvík í Færeyjum.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila