Fyrirtækið Kerecis sem framleiðir sáraumbúðir úr fiskafurðum hefur fjórfaldað sölu sína á vörum fyrirtækisins á bandaríkjamarkaði á undanförnum mánuðum. Fyrirtækið sem staðsett er á Ísafirði þar sem framleiðslan fer fram hefur vakið mikla athygli erlendis fyrir vöruþróun sína og nýsköpun. Meðal þeirra nýsköpunarhugmynda sem vakið hafa athygli eru sérstakir sykursýkissáraplástrar sem gefið hafa góða raun. Forsvarsmenn fyrirtækisins segja að höfuðáherslan sé sett þessi misserin á markaðssetningi í Bandaríkjunum en í dag starfa fjórir sölumenn og 20 umboðssölumenn á vegum fyrirtækisins í Bandaríkjunum og stefnt er að því að fjölga sölufólki þar um rúman helming. Þá stefnir fyrirtækið einnig á hlutafjárútboð í lok næsta árs.