Könnun: 78% vilja ekki að Guðni verði endurkjörinn

Mikill meirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu vilja ekki að Guðni Th. Jóhannesson verði endurkjörinn í embætti forseta Íslands. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring en niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi. Spurt var: Vilt þú að forseti Íslands verði endurkjörinn?. Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei 78%
Já 18,1%
Hlutlaus 4,1%
Alls voru greidd 369 atkvæði

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila