Könnun: 88% telja að biskup eigi að segja af sér

Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands.

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu eða 88% telja að Agnes M. Sigurðardóttir biskup eigi að segja af sér. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Á biskup að segja af sér?. Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já 88%
Nei 9%
Hlutlaus 3,2%
Alls voru greidd 652 atkvæði í þessari könnun

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila