Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja ekki rétt að hafa gjald á bifreiðastæðum við Landspítalann. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Niðurstaöan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Eiga bílastæði við Landspítalann að vera gjaldskyld?. Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei 85%
Já 12,4%
Hlutlaus 2,7%