Könnun: Telja að Bjarni Benediktsson sé að hætta í stjórnmálum

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sé að hætta í stjórnmálum.

Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Telur þú að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sé að hætta í stjórnmálum?

Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já 71,5%

Nei 22%

Hlutlaus  6,5%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila