Flestir myndu kjósa Íslensku þjóðfylkinguna og Dögun ef gengið yrði til þingkosninga í dag. Þetta kemur fram í niðurstöðu nýrrar könnunar Útvarps Sögu sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Hvaða flokk ætlar þú að kjósa til Alþingis?. Niðurstaðan var eftirfarandi:
Íslenska þjóðfylkingin 32,93%
Dögun 21,74%
Framsóknarflokkurinn 13,85%
Sjálfstæðisflokkurinn 7,97%
Flokkur fólksins 7,57
Píratar 6,12
Annað 3,62%
Viðreisn 2,82%
Vinstri grænir 1,53%
Samfylkingin 1,53%
Björt framtíð 0,32%