Könnun: Lækka á laun bankasjóra í ríkisbönkum

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu eru á því að lækka beri laun bankastjóra í ríkisbönkunum. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Á að lækka laun bankastjóra í ríkisbönkum?. Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já 92,2%
Nei 7%
Hlutlaus 1%
Alls voru greidd 504 atkvæði

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila